Auglýsing

At-kvćđi

23. maí 2006 klukkan 05:52
Með atorku og útpældum leiðum
vill at-hygli á grundvelli breiðum.
„Allt veraldarvænna
við flokk Vinstri Grænna”
kyrjar Elín á atkvæðaveiðum.
 

Þetta ljóð samdi hann Helgi, kærastinn hennar mömmu, fyrir mig í kvöld. Og mér fannst ég knúin til þess að deila þessu með ykkur. Fyndið ha?

En annars fara að birtast almennilegir pistlar hér eftir helgi, jafnvel myndir og annað í þeim dúr.

Aðalmaðurinn
Hitti þennan mann í dag. Mjög skemmtilegt.

Meira verður það ekki að þessu sinni.

Bless bless.
Elín Inga Ólafsdóttir
2 athugasemdir

Velkomin

13. maí 2006 klukkan 19:30

Af hverju að byrja með 3. bloggsíðuna? Glötuð gella.

En ég er bara svo mikil hermikráka og mig langar í svona flott blogg. Þannig ég skellti mér bara á eitt stk.

Hérna munu koma inn hugrenningar mínar um daginn og veginn? Hvaða dag og hvaða veg veit ég ekki, en ég mun reyna að komast að því.

Einstaka færslur verða læstar, því ég vil ekki að hver sem er sjái hvað ég er að hugsa um. Ekki segja öllum hvað lykilorðið er. Því að þú ert merkileg/ur að fá þann heiður að lesa þetta, og ef þú segir hverjum sem er frá þessu... Þá ertu ekki merkileg/ur lengur.

Ég er búin með öll próf og verð bara að chilla í tvær vikur eða svo.
En chill hjá mér í þessari merkingu er:
-Þjálfa körfubolta
-Vinna í bíóinu
-Klára bókhaldið fyrir NFS
-Kosningabarátta
og meira óráðið.

En það eru bjartir tímar framundan og sólin er farin að vera með okkur nánast allan sólarhringinn og þá verð ég alltaf svo glöð.

Ég ætla að reyna að hafa þetta geggjað töff blogg, eins og gefur að skilja. Þannig þið megið endilega koma með hugmyndir ef ykkur lystir.

Sjáumst á röltinu,
kv,
Elín Inga

Elín Inga Ólafsdóttir
5 athugasemdir